
Reynsla úr ólíkum þjónustustörfum
Um leiðbeinandann
Pétur R. Pétursson
Pétur R. Pétursson er fæddur árið 1966 og er menntaður iðnrekstrarfræðingur frá Tækniskóla Íslands. Hann bætti síðar við sig BA-gráðu í vefforritun (Web Development) frá UCN háskólanum í Álaborg.
Pétur hefur um árabil miðlað af reynslu sinni sem leiðbeinandi og fyrirlesari. Hann hefur leiðbeint á fjölda námskeiða á vegum Junior Chamber í framkomu og tjáningu, auk þess að halda námskeið um þjónustu, vöruþróun og hópefli á vegum MSS, Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.
Áður en Pétur sneri sér að vefþróun starfaði hann um árabil í prentgeiranum og býr þar yfir víðtækri þekkingu á flestum sviðum þeirrar iðngreinar.
Í dag rekur Pétur vefhönnunarstofuna Tengdó, þar sem hann sinnir allri þjónustu tengdri vefvinnslu, allt frá hönnun til utanumhalds. Samhliða því starfar hann sem útfararstjóri hjá Útfararþjónustu Suðurnesja. Pétur heldur einnig úti vefnum Bílablogg.is ásamt Jóhannesi Reykdal bílablaðamanni.
